Vöfflur
Hráefni
| 5 | dl | Hveiti | |
| 5 | dl | Súrmjólk | |
| 2 | stk | Egg | |
| 1⁄2 | tsk | Salt | |
| 2 | tsk | Lyftiduft | |
| 1 | tsk | Matarsódi | |
| 6 | msk | Matarolía/brætt smjörlíki | |
| 1-2 | tsk | Vanilludropar |
Aðferð
- Blandið þurrefnum saman í skál.
- Bætið við súrmjólk, eggjum, matarolíu/smjöri, og hrærið vel með písk.
- Bætið 1-2 tsk. af vanilludropum eftir smekk og hrærið.
- Bakað í vöfflujárni þangað til vöfflurnar eru ljósbrúnar, eða meira eftir smekk.